29október

nú ćtla ég ađ segja ykkur frá honum Halldór

Halldór: Óli þú þarft að fara í meðferð!

Óli: hvað ertu að meina?

Halldór: svona steikingameðferð, mér skillst að það sé gott að fara á ,,kentökí"

Óli: ég kann ekki að skrifa ,,kentökí"!

Halldór: skrifaðu bara K E N C H Y !

Óli: ok

Halldór: afhverju hef ég tilhneigingu til að hrækja framan í fólk ?

Óli: hvern varstu næstu búin að hrækja framan í ?

Halldór: þig, ég var næstum búin að snúa mér við og hrækja framan í þig

Óli: ok

Halldór: afhverju ertu að skrifa allt sem ég segi ?

Óli: því ég er að hlægja

Halldór: það eru til 3 gerðir af fólki sem skrifa niður það sem aðrir segja og það eru: blaðamenn, ævisöguritarar og heimskir lúðar eins og þú

Óli: hahaha

Halldór: þetta er agalegt!

Óli: ahhaha

Halldór: ef þú hættir ekki að pikka inní þessa tölvu þá borða ég hátalarana þína

Óli: bíddu aðeins!

Halldór: mér líður eins og Sigga D núna !

Óli: hahaha

Halldór: heyy þú gleymdir að skrifa fucking, ég sagði fucking hátalarana þína !



og svo var hlegið svoldið mikið meir og svona er kvöldið búið að vera hjá mér og halldóri !
 þetta er agalegt !

29. október 2006 klukkan 08:43
Ólafur G. Guđbrandsson
5 athugasemdir
28október

SJććjsen

jæja, þá er Halldór lenntur í borginni og maður er strax farinn að lýta ílla út.

Halldór vildi endilega fara í sund í dag og því þurfti maður að verða að hans bón. Nema hvað ég gleymdi helv. sundskýlunni heima. og þurfti að fá lánaða skýlu, sem var allt í góðu nema hún var svona eins og bikini skýla fyrir stelpur og þetta var það eina sem var í boði.

já herrar mínir og frúr í þessari bíkini brók labbaði ég hálf aumingjalegur út og fór strax oní laug, þegar ég leit svo til vinstri sá ég 3 littlar stelpur hlægjandi að mér, mér til litlar skemmtunnar. Vegna þessarar stelpna hreyfði ég mig ekki í lauginni og var frekar low profile í lauginni þangað til átti að fara uppúr. Því þá tók halldór uppá því að öskra til þess að laða af mér meiri athygli. Akkurat á þeim tímapunkti hugsaði ég með mér ,,það er eins gott að Bára er ekki hérna" guð veit hvað hún hefði gert mikið grín af mér :o

En af þessum degi má læra eins og öllum öðrum, förum í sund og tökum sundfötin með !
28. október 2006 klukkan 00:58
Ólafur G. Guđbrandsson
5 athugasemdir
21október

Hjálp ?


Ég var að pæla að biðja ykkur um hjálp, ég á nefnilega að halda fyrilestur á nærsta miðvikud. og mig vantar e-ð til þess að fjalla um

það þarf ekki að vera langt en ég þarf að vera ca. 5 min að komast yfir efnið :P


                                                             Með fyrframm þökk Óli :)
21. október 2006 klukkan 06:27
Ólafur G. Guđbrandsson
4 athugasemdir
16október

Endurfundir

helgin, ahh hvar á ég að byrja. Við erum að tala um að þetta var fyrsta skiptið sem við (allir vinaskarinn) síðan í sumar.

ég ætla að minna fólk á að ég set myndir inn um leið og ég er búinn að átta mig á aðstæðum. jáá helgin var fín yfir heldina litið, þótt svo að Örvar hafi ákveðið að vera á rúntinum allann tímann.

Föstud.:
byrjaði með myndatöku fyrir framann Apótekið, og eftir það var farið Til Gunna Óðins og Ívars Þar sem Sævar gerðist formlegt afmælistbarn eftir það bailuðu allir e-rn veginn á mér og Sigga. Eða Örvar var á rúntinum, Halldór e-ð að tala við þordís, Sævar var bara afmælisbarn og rest farin heim. Þannig að ég og Siggi tókum okkur til vorum 2 í rónaklassa alveg þangað til ég drakk of mikið og varð leiðinlegur og var þá sendur temjari á mig sem fór með mig heim.

Laugard.:
hmm, ég held að ég hafi sofið allann laugard. En þegar ég vaknaði brunaði ég heim til Sigga D og ætlaði að Horfa á One Tree Hill, en þá var klukkann orðin svo margt að ég sleppti því og sendi Ollu eftir skyrtunni minni og e-rri lykt. Þegar ég og Siggi vorum loksins til (Búnir að setja blingið í eyrað og svona) skutlaði Skúli okkur til Sævars sem var með Veislu fyrir okkur hina Hálfvitana, þar var borðað og þar var dansað og þar voru teknar myndir.

en síðan skunduðum við niðrí bæ þar sem voru teknar fleyri myndir og sullað bjór í sig, en ég var bara spakur að sjálfsögðu annað en Maggý sem endaði með því að ÆLA yfir mig og Úlpuna mína :/
Svo þegar allir voru að leysast frá hvorum öðrum (Örvar kominn á rúntinn og svona) ákváðum við að fara heim til Halldórs til að bindast aftur þessum böndum sem höfðu losnað þegar Örvar fór á rúntinn.
Þegar sú athöfn var í höfn ákváðum við að fara aftur niðrí bæ. En voru þá nokkrir liðsfélagar farnir heim, T.D. Afmælisbarnið, Gunni og Gabríel (í stafrósröð).

Þegar í bæinn var komið var kallt og blautt, en eins og alvöru Siglfirðingar stóðum við það af okkur.
Og viti menn þegar við vorum búnir að vera svona hálftíma í bænum stoppaði Olla hjá okkur og afturhurðinn opnaðist kom þá Örvar ÚT úr bílnum og hékk með okkur um stund. en hann fór síðan heim ofurölvi og nöldrandi um að hann væri ekki fullur.

eftir bæjarferðina fórum við aftur heim til Halldórs í smá og fljótt eftir það fór ég bara að sofa :/

Sunnud.

eftir að hafa sofið allann sunnud. talaði ég við Halldór og Gabe um að koma í spólu hingað, sem þeir gerðu.
Og endaði þessi spóluferð með Gabe steinsofandi í sófanum, Halldór að reyna að ná sænginni af Gabe. Og ég í tölvunni :P

en ég nenni ekki að skrifa meir þannig að ég bið bara að heilsa ykkur. :)
16. október 2006 klukkan 21:32
Ólafur G. Guđbrandsson
7 athugasemdir
05október

sögustund ?


Einu sinni fyrir langalöngur var Prins, hann var konungsprins. Þessi Prins átti vin sem hét Póló. Prins og Póló voru góðir félagar og eyddu öllum sínum frístundum að hanga saman í gameboy color og var þar Pókemon aðal leikurinn.
eitt sinni þegar þeir voru staddir í höllinni og vöru að spila pókemon voru þeir orðnir svangir. Skunduðu þeir þá í ísskápinn og hittu Þar Kók.
Kók, Prins og Póló byrjuðu á því að verða góðir vinir og stunduðu þeir grimmt pókemon í þríhyrning. en síðar meir byrjaði Prins að falla úr mætti 3. Fór hann þá að reyna að finna sér e-ð annað að gera og ráfaði um hallargarðinn.
Kynntust þau svo vel að þau urðu náin, frekar of náinn, Þannig að Prins komst að leyndarmáli stúlkurnar.
En hún var í raun og veru karlmaður! Þegar Prins komst af þessu og hljóp til Kók og Póló. En þau voru of upptekinn við að vera Kók og Póló.
Prins vissi nú ekki hvað hann átti að gera og fór aftur til ,,stúlkunnar" sem var tilbúin með snöru og snaraði hann um leið og hann kom útúr höllinni og laggði á hann álög. Breyttist nú Prinsinn í súkkulaði frosk og þyrfti e-rja konu til þess að kyssa sig til þess að losna undann álögunum.

Fór nú Prins til Kók og Póló en þá voru þau orðinn kærustupar og vildi Póló ei kyssa prins. Þannig að Prins fór þá bara í grænmetið hjá Hollt og Gott. neitandinn var ekki ánægður með að súkkulaði froskurinn væri í grænmetinu hennar (ein af megrunarkellunum) og hringdi í starfsmann sem kom og náði í Prins.

nú varð Prins glaður og hlakkaði til að hitta konu sem gæti kysst hann.
Þegar Prins var kominn inná skrifstofuna beið kona eftir honum þar og færði Prins sér til Munns og ÁT hann !
05. október 2006 klukkan 22:24
Ólafur G. Guđbrandsson
9 athugasemdir
28september

Killing Mr. Griffin

heyrðu, ætla ekki allir heim á Sigló um helgina ? og þeir sem eru staddir þar núþegar, er ekkert um að vera um helgina ?

jáá eins og glöggt fólk ætti að vera búið að fatta er ég að koma heim, og það er líka eins gott að það verði e-ð skemmtilegt :) verður ekki fjölmennt í hraðbankapartýið sem ég og Guðný Þóra ætlum að rukka inná. **já þar verður boðið uppá popp á bjór.

**ATH popp og bjór ekki innifalið

en allavega er lítið að frétta af mér þar sem það er ekkert að gerast, eða júúú Jói P er að vinna mig í fífa 2005 keppni 3-1 en ég hef verið að stunda 2006 útgáfuna er erfitt að gíra sig niður í 2005 aftur, en þetta er að koma :D

og fólk þið verðið að vera góð við Örvar, hann er e-ð sár útí mig og þið verðið að hjálpa mér að mýkja hann upp :P

heyy Liverpool 3 Galatasray 2 þar sem Pétur Klof fór fyrir sínum mönnum með 2 mörk og annað þeirra ekki síðra heldur en hitt

er fólk samt ekki á leiðinni heim til Sigló ? Ég myndi ekki fíla að vera þar og bara allt dautt

en þá er þetta bara komið í bili, ég bið bara að heilsa

28. september 2006 klukkan 02:35
Ólafur G. Guđbrandsson
7 athugasemdir
27september

Blómapottur

jæja gott fólk,

Ég hef aldeilis fréttir að færa því ég held að hann Örvar Andri Sævarsson sé að potast út úr kofanum (skápnum). En Undanfarið hefur peyjinn komið með ansi vafasamar settningar, og hér ætla ég að nefna top settningarnar, en ég vill benda fólki á að þær eru miklu fleiri.


Hér rétt áðan var Örvar að spurja mig um nafn á bloggsíðu, og ég svaraði jafnan mjög skilningsríkt og einfalt ,,Blómapottur". En honum fannst það ekki nógu gott þannig að ég hélt áfram að giska, og þið sjáið bara rest


Óli Guðbrands says:

jæja

kassinn

bradpitt

Örvar Andri | says:

gay eða ?

Óli Guðbrands says:

ég held að hann eigi konu :/

Örvar Andri | says:

hehe ojj

Með þessu er hann bara að segja að konur séu ógeðslegar (ekki að konur séu e-ð verri heldur en kallar *hóst* )

En þetta er ekki allt, þar sem við fórum í Bíó í gær. Auðvitað fékk hann að ráða myndinni og hann valdi step up! og rétt áður við löbbuðum inn var hann e-ð að blaðra um það að hann væri orðinn allsKYNS huzler :o ´

Svo er hann líka farinn að stunda ljósabekkina grimmt, þannig að ég bara spyr.

Hvað finnst þér um kynferðislegar athafnir hjá drengnum  ? Og Örvar, ég er ekki að reyna að vera vondur við þig. Ég er bara að reyna að hjálpa þér :D

27. september 2006 klukkan 00:21
Ólafur G. Guđbrandsson
13 athugasemdir
23september

7up !

jæja félagar og hinir líka. Við erum að tala um að ég sé búinn að fá tölvuna mína hingað suður, þannig að ég get sett e-rjar myndir inn. En við tölum betur um það þegar af því kemur.

Ég er bara búinn að standa í veseni í dag, fór í Byko með pabba kallinum því hann vildi endilega mála herb. mitt :o
Þannig að ég valdi mér fallegan bláan lit (þó herb. liturinn skiptir ekki öllu máli því ég á bara eftir að vera sofandi þegar ég nota það)

En jamm og já, ég var að pæla að koma til Sigló á næstunni. E-r sérstök helgi sem þið mælið með ? helst þegar e-ð er að gerast, ef það er e-ð á leiðinni að gerast þarna fyrir norðan.

Örvar og Gunni stungu af í dag þannig að ég sit bara uppi með gamla settið þessa helgina :o en þeir fá eftirfarandi refsingar þegar þeir koma til baka.
Örvar fær: 10 magaæfingar og 5 armbeygjur ásamt að elda handa mér á næstkomandi mánud. kvöldi.
Gunni sleppur vel en fær samt að hanga með mér í skólanum.

BTW, þetta er nánast fyrsta föstud.kvöldið mitt sem ég fer saddur í háttinn.

Og 1 enn, hvort finnst ykkur réttara að segja: hjá Guðrúni eða hjá Guðrúnu ?

en ég kveð að sinni með fullan ískáp og tómt veski :o

23. september 2006 klukkan 04:42
Ólafur G. Guđbrandsson
5 athugasemdir
21september

Spalding


Ég var að pæla, eða ég er búinn að vera að pæla alveg síðan ég flutti hingað hvort strætó sé bein- eða sjálfskiptur :o hvort haldiði að það sé ?

Annars er ég bara búinn að vera í rólegheitunum þessa vikuna, Úff ég er bara alveg tómur

Og héðan í frá má bara velja ,,Nei!" í skoðunnarkönnunni ég skil ekki hvaða samsæri þetta er :o þetta sýnir bara hvursu langt er síðan ég kom norður

en ég vildi bara tjá mig e-ð hérna og þar sem ég er búinn af því ætla ég bara aftur í Fifa :D
21. september 2006 klukkan 23:38
Ólafur G. Guđbrandsson
2 athugasemdir
19september

Elba Rado

jæja.

það er víst kominn tími til þess að skrifa nokkur orð hérna. En helsta ástæðan fyrir því að ég hef ekki gert það fyrr er vegna þess að ég hef svo lítið að gera, og þegar maður hefur lítið að gera festist maður í fifa.
Ég er búinn að vera að spila fífa síðan eftir að ég kom til Sigló síðast. Enda get ég ábyrgst að ég vinn ykkur öll.

ég sendi Jóa bróðir grenjandi til tyrklands í morgun, greyið er orðinn svo háður mér að það getur orðið erfitt að kveðja.

hey já, ég var líka busaður á miðvikud. og það var viðurstyggilegasta athöfn sem ég hef lent í.

þetta byrjaði þegar ég mættí i skólann kl 11 og áður en klukkann var tólf var ég látinn skríða baulandi allann ganginn, taka til í öllum matsalnum eins míns liðs, taka 100 armbeygjur og magaæfingar. og þá var busunin ekki byrjuð.

því þegar klukkan var hálf 1 var farið með alla á Atlavík og þá vorum við látin sitja í kuldananum á stuttermabolum, eftir það var farið með okkur í e-rja braut sem var viðbjóður, við byrjuðum á því að skríða undir e-rjum spotta í e-rju drullu ógeði og eftir það var látið mig þamba misu, en það sluppu víst margir við það :/
og síðan tók við Kar sem var full af fiski og fisk inneflum í bland við misu, í þessu þurftu sumir að sitja, eða fara í konnhnís eða bara leggjast oní þetta, en samt voru e-rjir sem löbbuðu bara yfir. Eftir þetta var gefið okkur nammi sem hafði verið látið liggja í misu í e-rjarvikur og svo var þrifið á okur andlitið með misu.

Ég hef ekkert meira að þannig að þetta verður bara að nægja :)

19. september 2006 klukkan 20:48
Ólafur G. Guđbrandsson
4 athugasemdir

Ađalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

gott í sjóinn ?

Leikur dagsins

Innskráningar kubbur